Starfsfólk Símenntunarmiðstöðvarinnar er nú í óða önn að leggja lokahönd á námsvísi stofnunarinnar fyrir haustönn 2010, en hann mun koma út fyrstu vikuna í september. Í námsvísinum verða kynnt þau námskeið og þær námsleiðir sem í boði verða í vetur og að venju verður mikið úrval námskeiða, þannig að sem flestir ættu að geta fundið nám og námskeið við sitt hæfi. Námsvísirinn verður borinn í öll hús og fyrirtæki á Vesturlandi þannig að enginn ætti að þurfa að láta hann fram hjá sér fara.
7. júlí 2010 11:48
Sumarlokun
Vegna sumarleyfa starfsfólks er skrifstofa Símenntunarmiðstöðvarinnar lokuð í júlí. Skrifstofan opnar aftur þriðjudaginn 3. ágúst kl. 9:00.
Sumarkveðjur,
starfsfólk Símenntunarmiðstöðvarinnar á Vesturlandi